UNESCO
UNESCO

Íslenskir staðir

Núgildandi yfirlitsskrá

Árið 2007 samþykkti íslenska ríkisstjórnin tillögu menntamálaráðherra og umhverfisráðherra að nýrri yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO. 31. janúar 2011 var UNESCO tilkynnt formlega að ný yfirlitsskrá hefði tekið gildi fyrir Ísland og skráin frá 2001 félli þar með úr gildi. Á yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands eru nú eftirtaldir staðir:

Náttúru- og menningarminjar:

Náttúruminjar:

Menningarminjar:

 

Yfirlitsskrá 2001 - 2011

Fyrsta íslenska yfirlitsskráin var lögð fram á skrifstofu heimsminjanefndarinnar í París árið 2001. Á skránni eru, auk Þingvalla og Surtseyjar sem nú þegar eru á heimsminjaskrá UNESCO, eftirfarandi staðir:

  • Skaftafell
  • Breiðafjörður
  • Núpsstaður
  • Keldur
  • Gásir
  • Reykholt
  • Víðimýri
  • Mývatn
  • Herðubreiðalindir
  • Askja
 

Surtsey

Umsóknin um Surtsey á heimsminjaskrá var lögð fram í febrúar 2007 og var hún samþykkt á fundi heimsminjanefndar UNESCO á fundi hennar í Quebec í Kanada í júlí 2008.

Surtsey er útvörður Íslands í suðri og ein af úteyjum Vestmannaeyja. Surtsey myndaðist í neðansjá vareldgosi í nóvember árið 1963, en gosinu lauk 5. júní 1967. Auk Surtseyjar mynduðust eyjarnar Surtla, Syrtlingur og Jólnir, en eldvirkni í þeim stóð stutt og þegar henni lauk hurfu þær fljótt af yfirborði sjávar, en ummerki þeirra sjást enn neðansjávar.

Surtseyjareldar er lengsta og best þekkta eldgos í sögu Íslandsbyggðar, þar sem fylgst var náið með gangi eldgossins frá upphafi.

Nánar...

 

Þingvellir

Umsóknin um Þingvelli á heimsminjaskrá var lögð fram í febrúar 2003 og var hún samþykkt á fundi heimsminjanefndar UNESCO á fundi hennar í Suzhou í Kína í júlí 2004.

Á Þingvöllum var allsherjarþing Íslendinga komið á fót árið 930 og kom þingið þar saman allt til 1778. Þing stóð yfir í tvær vikur í senn og á þeim tíma settu þingmenn lög, miðluðu málum og kváðu upp dóma. Þingvellir hafa djúpstæða sögulega og táknræna merkingu fyrir íslensku þjóðina.

Síðast uppfært (Fimmtudagur, 09. desember 2010 09:24)

Nánar...