Heimsminjanefnd UNESCO
Alþjóðlega heimsminjanefndin (The World Heritage Committee) er kosin til fjögurra ára á tveggja ára fresti, helmingur fulltrúa í senn. Hennar helstu hlutverk eru:
Að bera ábyrgð á framfylgni og þróun samningsins
Að taka við yfirlitsskrám
Að ákveða hvaða staðir fara á heimsminjaskrána
Að ákveða hvaða staðir fara á listann yfir heimsminjar í hættu
Að ákveða styrki úr heimsminjasjóðnum
Að aðstoða við verndun heimsminja með því að bjóða fram tækniaðstoð og þjálfun
Að vekja fólk til vitundar um vernd menningar- og náttúruminja
Að hvetja til alþjóðlegrar samvinnu um varðveislu menningar- og náttúruminja
Í nefndinni sitja nú (haust 2012) fulltrúar frá: Algeríu, Kambódíu, Kólumbíu, Eistlandi, Eþíópíu, Frakklandi, Þýskalandi, Indlandi, Írak, Japan, Malasíu, Malí, Mexíkó, Katar, Rússlandi, Senegal, Serbíu, Suður Afríku, Sviss, Tælandi og Sameinuðu Arabísku furstadæmunum.